Könnun

Kjeppz eđa Gellz ?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

89' Úber alles!

23. júlí 2008 klukkan 18:49
Jæja núna styttist óðum í ferðina miklu sem menn hafa beðið eftir í mörg ár, eytt öllum sínum pening í, unnið allt sumar fyrir, sogið mörg t... nei whaa! En núna er komið að því að njóta þess til fulls.  Öll blindfull, sveitt, feit og sexy á ströndinni að láta sólina sleikja á okkur rassgatið. 

Sjálfur fer ég suður 28.júlí og get ekki beðið. Þar mun maður kaupa einhvað fyrir ferðina eins og stuttbuxur and shit, því ég á ekki rassgat hérna heima.  Svo verður maður í Reykjavík að chilla í 3 daga.  Skellir sé á Batman í bíó, rústa strákunum í paintball og hanga með ömmu og afa í ólsenólsen.  Síðan verður ferðinni haldið til Keflavíkur ekki meira en minna klukkan 4  um morgunin.  Hef heyrt ýmsar útgáfur á því hvernig fólk ætlar að sofa eða ekki sofa fyrir ferðina.  Best fannst mér samt miðnæturbíó og svo eftir myndina byrja að húkka sér far til Keflavíkur.  Gaman að sjá þá stráka ekki á Spáni :)  Á Leyfsstöð verður svo fengið sér sinn fyrsta bjór, ekki spurning.  Nema Halldór og svona strákar sem segja "Ahhh ég vill ekki vera þunnur á meðan ég flýg" .... kjellingar! Veit að Baldur mun ekki hika við að fá sér einn öllara með mér, eða bara skot!  Balli er búinn að vera traustur drykkjufélagi minn í sumar á meðan maður blótar mönnum eins og Dóra :)  Gaman að segja frá því að það var skorað á okkur í Tequila keppni.  Man ekki alveg reglurnar, en það fólgst í því að drekka mjög mikið af Tequila án þess að drepast eða æla.  Jááá liðið okkar samanstóð af Brynjólfi "Sóla" Óla, Baldri "drapst fyrir 10 á Tequila" og Emil "Tequila snakk stuð í stakkó".  En eftir stífar æfingar hjá okkur, eða meira svona 2 æfingar þá komumst við Baldur að svolitlu sem gæti stoppað okkur í þessari umræddu keppni! Við getum ekki drukkið Tequila lengur eftir síðustu Tequila fyllerí :(  Þannig það verður skrautlegt hvernig þessi keppni endar.  Upp á móti kemur líka að Hjalti, Danni Fabio og Gulli munu keppa á móti okkur! Þeir hafa sko mígið saltann sjóinn skal ég segja ykkur.  Nóg með það, við látum ekki á okkur standa og sýnum afbragðs takta!

En ég heyrði á því að Lára sagði við mig einn daginn, þessi yndislega stelpa btw  :) - að síðasta kvöldið okkar útá Spáni myndum við öll éta saman, drekka bjór og þá mundi verða svona skemmtileg "kosning" þar sem allir fengu sitt "gælunafn" ferðarinnar.  Eins og tökum til dæmi ; Baldur fyllibytta ferðarinnar, Óli Tequila ferðarinnar.  En það vita allir að ég fæ bæði þessi en þetta var bara dæmi.  Spurning hvort að það séu ekki allir game í þetta og þá reyna að standa við það, því jú við erum ekki mikið fyrir að standa undir okkar hlutum nema það sé einhvað fyllerí. 

En ég hef ekki mikið meira að segja nema ég get ekki beðið eftir að rota ykkur öll með felgulykli útá Spáni, loka ykkur í ruslagám, ræna ykkur og senda ykkur til Rússlands með Ryanair :)

Sjáumst þar faggots!

kv. Undrabarn 89' árgangsins, Emil


Bezti vinu rminn

Sjallalala ćvintýri enn gerast (8)

14. apríl 2008 klukkan 00:16
Án efa var þetta lag ferðarinnar. Já ég sagði það! Alla vega þá er ég kominn heim eftir 3 daga ferð til AK. Get ekki annað sagt en þetta hafi veirð helvíti skemmtileg ferð.

Ferðin byrjaði eftir skóla á fimmtudegi þegar við félagarnir komum saman á bensínstöð einni á Ísafirði. Þessum strákahóp var svo skipt uppí 2 hópa, þ.e.a.s.


Príushópurinn (sem var öllu leiðinlegri hópurinn) : Arnar Pabbi Friðrik, Bjössi Megafulliogsvoógeðslegaþunnurdagurinneftir, Sindri PassaBjössagaurinn og Jói Sökkaídrykkjuleiknummikla

Avensishópurinn (skemmtilegi hópurinn) : Baldúr Rat, Wolgeirs GinogTonic, Óli Leiðinlegimyndatökumaðurinn og svo síðast en ekki síst ég sjálfur.


Svo fór flotinn leiðina í djúpið í sumarbústað Arnars. Þar var komið sér fyrir og fengið sér að éta. Eftir að hafa étið í mig misgrip á pizzu í bónus sem var ógeðslega sterk pizza og skolað niður í sér með 2 eplasvölum fórum við nokkrir í náttúrupottinn sem var ekki langt frá bústaðnum. Óli, Wolgeir og Jói biðu heima og helltu sig fulla. Í pottinum var fengið sér bjór og spjallað saman í ógeðslegum kulda, en potturinn hélt í okkur lífinu. Þá ákveða Arnar og Baldur að skella sér heim snemma enda gott því sandurinn úr píkunum á þeim tveim var byrjað að fylla pottinn. Þá voru eftir ég, Bjössi og Sindri. Áttum við notarlega stund þar í sirka klukkutíma í viðbót þegar Arnar kemur og sækir okkur. Þegar maður kemur heim með sirka 2% af sahara í nærbuxunum blasir við manni Valdi, Jói og Óli sitandi í stóla að semja rapp. Ætli fólk fái ekki að heyra þessa snilld einhvern tíman á rapp plötu Valda seinna meir. En ekki nóg með það, nema hvað þá var Valdi svo skemmtilega fullur að hann stóð ekki í lappirnar gamla fyllibyttan. Segi svona, en hann hrundi nú samt þegar hann var búinn að klifa upp stigan að dýnunni sinni. Eftir það slóumst við, Baldur, Óli og Valdi í smá tíma og fórum svo að sofa.

Föstudagurinn var all skemmtilegri að mínu mati. En þá fórum við bara til AK. Komnir snemma og skellt dótinu sínu á Hól 2 sem var sveita bær sirka 10 km frá bænum. Jói ákvað að vera hetja og vera edrú þetta kvöld og skutla okkur til AK. Ég og Óli byrjuðum alla vega á fyrsta bjór á Blöndósi. Við skelltum okkur um kvöldið til Gulla og félaga sem voru með íbúð nálægt miðbænum. Þar var maður bara að sötra og spjalla, þangað til leiðinni var haldið á 18 ára ball í Sjallanum. Með einhverri tilviljun skiptist hópurinn á miðri leið í príus og avensis hópinn aftur, þar sem príus hópurinn taldi sig vita styttri leiðina, já nei ! Við fórum hina leiðina og komnir að Sjallanum svona 20 mín á undan þeim :) Hellað stuð á Sjallanum og fulllt af fólki, en já til gamans má geta að þetta var ball með Bloodgroup og HaffaHaff. Vá hvað HaffiHaff er alveg snarrrr. Nóg var af áfengi, börum, fullum stelpum, heimskum tjokkóum og slagsmálum. En hvað er djamm án þess að hafa þetta ? Þau slagsmál sem standa mér efst á huga var án efa þessir 2 vígalegu gæjar sem voru fyrir utan Sjallan, báðir alblóðugir í andlitinu. Nema hvað þá var þetta einn gæji sem ég hafi lent á spjalli við 10 mín fyrir og helvíti nice gaur. En ekki hvað þá endaði hinn gæinn einhvað illa úr því, tók hann ekkert lítið vel á honum. Eftir þetta reyndi maður að lemja frá sér til að komast aftur á ballið. Þar var djammað lengi vel. Þegar ég fer út þá hitti ég gaurinn sem ég hafði lennt á spjalli við og var að lemja hinn gaurinn. Ég spurði hann hálf smeykur hvernig slagsmálin hafi endað fyrir utan. Blasti ekki við mér þessi gríðalega alvarlegi svipur og orðunum gleymi ég aldrei "Jááá hann ... nehh held hann hafi ekki komið svo vel útúr því maður" og svona svipur eins og hann hafi drepið hann. Jájá alltaf gaman af svona hlutum. Síðan vorum við einhvað að rölta niðrá torgi og sé ég ekki þessa stelpu sem er hágrenjandi liggjandi á jörðinni haldandi utan um magan á sér. Svo var brjálaður gaur bak við hana og einhver gaur sem hélt honum í skefjum. Spurning hvað var þar á seiði. Alla vega þá rétti ég mína hjálpar hönd eins og víking ber að gera. Spurði hvort ég ætti að hringja á sjúkrabíl eða svo. Neinei hún var svo sótölvuð að það var ekki hægt að tala við hana og svo grenjaði hún bara ofan í orðin. Þannig ég bar hana alla leið frá torginu að Kia hótelinu! Geri aðrir betur. Baldur segir að karmaið mitt eigi eftir að kicka inn bráðum í lífinu :) En svo var bara skellt sér heim með strákunum klukkan sirka 5-6.

Laugardagurinn var bara hella góður líka. Fórum bara á söngvakeppnina að styðja okkar skóla. Fór inná hana bliiiind fullur klukkan 7. Kom út af henni bláedrú klukkan svona 11 ! Pirraður labbaði ég með strákunum í íbúð sem Helga Margrét og gellz voru með til afnota, og byrjaði að sturta í mig. Jáá skelltum okkur svo á ballið, sem var alveg ágætt. Var bara svo mikið af fkn gellum að maður gat ekki hugsað rökrétt. Þannig ég dróg Baldur með mér að fá okkur að éta, þegar ballið var rétt á enda. Röltum niðrá Hlöllabát og fengum okkur snæðing. Hittum svo alla strákana þar og reynum við að finna taxa. En ekki það að það tók okkur sirka einn og hálfan tíma að reyna að redda okkur taxa heim í þessum ógeðslega kulda sem gekk yfir. Man að Arnar hljóp upp kirkjutröppurnar til að halda sér á hita og flaug á hausinn þegar hann fór niður.

Sunnudagurinn var nú bara chillaður eins og vera mátti. Tókum til draslið og drulluðum okkur útí bíl og lögðum af stað heim eftir helvíti góða ferð. Hefði samt ekki getað lifað ferðina af nema Elsa, Ástey, Dóri sæti og Pabbi og mamma hefðu fjármagnað mig í gegnum ferðina. Þannig þakka þeim styrkaraðilum fyrir


Vert ekki með þetta þarna! Agnes, hlaut að vera Sirrí bombomb Baldúr

And leave how I arrived, so alive

14. mars 2008 klukkan 15:40
Vá hef ekki farið inná mína eigin síðu í langan tíma. Þar að leiðandi hefur hugmyndafræði mín um blogg ekki farið efst í mínum huga. Ákvað að skella inn bloggi útaf því að ég er svo geðveikt ánægður. Kominn í fkn páskafrí, endalaust djamm framundan, bara 139 daga í ferðina miklu til Costa Del Sol (blekaður!), afmæli hjá Sigga Pepp og Óla sæta á morgun (blekaður!), aldrei fór ég suður (blekaður!) og geðveikt veður (nehh?). Allt er mér í haginn í dag ef seinna mátti vænta. Síðustu mánuðir hafa ekkert verið svo skemmtilegir.

Svo er Menntaskólinn minn ágæti að fara að baka MH í Morfís í kvöld og komast í úrslit. Svo er það bara roadtrip með strákunum suður í Háskólabíó!

Æji shit ég ætla ekki að hafa þetta langt, bara svo lónerar eins og ég hafi einhvað til að lesa á netrúntinum sínum. Svo þetta verður bara stutt og laggott í þetta sinn. Kem vonandi með hörku blogg um hvernig helgin verður ef ég man þá einhvað frá henni

P.s : Sindri þú bestur, I think of you all the time :(





Sá sem veit hvað þetta er fær verðlaun :) Dóri þú færð verðlaun ef þú veist næstu línu (Y)

Baldur komst á balliđ !!

17. febrúar 2008 klukkan 03:25
Jæja það er mikið af því slegið það sem ég sagði fyrst um að vera duglegur bloggari. Held ég hafi svona 5 sinnum reynt að byrja nýja færslu en alltaf hætt við bara. Ætla mér hins vegar ekki að gefast upp núna og fara alla leið með þetta blogg.

Gaman að byrja á því að segja frá föstudeginum þar sem maður hefur ekki mikið að blogga um nema hvað daga mína hefur drifið. En föstudagurinn var rosalegur. Í sjálfu sér var "dagurinn" þess háttar ekkert skemmtilegur. Frekar kvöldið sem er meira frá sögu færandi. En klukkan 6 fórum við Baldur uppí kíwó með afmæliskveðjur á vörum okkar. Þökkuðum afmælisbörnunum fyrir að bjóða okkur í partí, en svo þegar á kvöldið dró byrjaði maður að fatta að það máttu eiginlega allir bara koma. En alltaf gaman að hafa fengið persónulegt invite. Alla vega stöldruðum við ekki lengi þarna og fórum með fyrsta fari niðrá Edinborg með Guðbirni. Þar biðu dýrindismáltíðir handa okkur. Fyrst var konungleg villisúpa meðfylgjandi hvítufransbrauði. Afar gómsætt, en hins vegar kláraði ég ekki súpuna. Ég þurfti að gera upp á milli vökaskammts í magann á mér = Vodki eða súpa ? Strax eftir það var borið fram nautafilleh með kartöflu og grænmeti. Fann eiginlega ekki bragðið af kjötina því þar rann bara niður í magann á mér og ég kannski orðinn svona "mikið lifandi skelfingar ölvaður". Ásamt eftirréttinum sem var súkkulaðibomba var sýnd árshátíðarmyndin sem mér fannst bara mjög góð. Eftir þetta ævintýri og hálfur vodkapelinn búinn var skellt sér upp í kíwó aftur. Ekkert sem maður bjóst ekki við þar en þar t.d hljóp Boggi eins og hetja eftir borðlengjunni yfir allt sem á því stóð. En eftir klukkutima dvöl þar var hins vegar komið að aðal púffi kvöldsins.

Enginn annar en Páll Óskar dj kjeppz mættur í fjörðinn! Gjöðveikur dj og brjálað stuð inná Edinborg. Maður var sjálfur sótaður að maður var alveg útúr heiminum. Ætla að fá Óla til að senda mér einhverjar svæsnar myndir sem hann tók af ballinu og setja í þetta blogg. Eftir frábært ball og maður kannski byrjaður að koma aftur til í umheiminn var íhugað að skella sér útí vík í eftirpartí. En ég hætti svo treglega við það enda ekki líklegt að fá far heim í djammdressinu klukkan 5-6 um morgun ? Fór heim og steinrotaðist í rúminu.

Laugardagurinn er eiginlega ekkert frá sögu færandi annað en það að það var hangover partí hjá Bjarna Rúnari sem var alveg ágætt. Svo byrjaði að síga á það og fólk byrjað að horfa á Póker og ein skemmtilega full að kenna öðrum að dansa við einhvað tekknó beat. Sá það í leik að þetta var ekki það sem ég vildi og fór beinustu leið heim fyrir framan tölvuna og lét orð mín skína í gegnum þetta blogg. Ætla að hætta núna á svo ég setji ekki heimsmet í orðafjölda á bloggar.is.

Þangað til næst! Stay in school. Já til hamingju Baldur að hafa komist á ballið (Y)



Vááá þetta var geðveikt ball maður!



Gerast ekki svalari ?



3 töfrabragðið hjá okkur strákunum. Mjög frægt og verður meira af þessu næstu árin

Palla viđ fórum á, eđa ?

29. janúar 2008 klukkan 22:12
Jæja þá er maður kominn heim eftir langa ferð til borg óttans. Ég og Baldur ákvöðum með einhverjum fyrirvara að skella okkur suður á Laugarvatn. Þar var sett takmark að klára Tequila flösku og skella sér á Pál Óskar ball. Auðvitað til að hitta vinkonur okkar, þær Silju og Ástey og reyna að kynnast nýju fólki.

Héldum af stað um hádegi á fimmtudegi. Valdi O. kom með okkur með stuttum fyrirvara hins vegar. Þar lá leið okkar suður í ekkert spes veðri. Á leiðinni var bara spjalla um heima og geima og tekið bílaleikinn. Scania bílarnir voru orðnir öflugir í lokinn, en man ekkert hver fór með sigur af hólmi í þessum leik. Eftir sirka 9 tíma akstur, útafakstur, tog og slitinn spotta vorum við loksins komnir til borgarinnar. Hentum Valda út í Smáralind og ég bara rétt hjá. Amma og afi í Danmörku svo kjellinn var bara með íbúðina einn. Eftir smá var komið hugsanlegt chill partí, en Bjössi, Kristján og Óli komu til mín. Var ég fljótur að reka 80% út, en Óli varð eftir og gisti hjá mér. Daginn eftir var bara vaknað snemma og skellt sér á gleraugu. Yeah maður er orðinn ógeðslega plebbalegur núna. En upp á móti kemur að gleraugun voru greinilega að virka í keilu á móti Balla þar sem ég sigraði hann með 129 á móti 70 einhvað. Hræðilegt hjá honum Balla. Svo var bara púttað sig uppí Broadway djamm !! Þar hitti maður strákana Smára, Bjössa, Krissa, Óla og Dóra. Arnór var þarna líka mikið rétt ásamt fögru Katerinu líka! :)

750 kr bjórinn á barnum þarna, rán!

Þar voru margir framandi drykkir prófaðir og allir orðnir vel ölvaðir meðal 50 ára fólks. Endaði eiginlega bara á því að ég var alveg að drepast og fór með Óla í taxa heim. En ekki var hægt að enda djammið án þess að panta pizzu klukkan 5 um nóttu og mjólkurglasi.


Allt fyrir þig Bjössi minn ;)

Svo var það bara laugardagurinn. Eg vakna og við Balli leggjum af stað sirka 3 til Laugarvatns. Klukkan svona 8 var fólk byrjar að sturta í sig almennilega, þannig ég opnaði bara bjór og skellti mér með hann í sturtu. Baldur þyrsti ekkert smá í Tequila þannig ég kom úr sturtunni og þar beið mín eitt skot. Lét mig hafa það og tók það. Þar sem Baldur hefur aldrei verið þekktur fyrir bjórdrykkju, þá byrjaði hann bara að hella í sig öðru og öðru skotum. Eg reyndi að halda í hann, en ekki gekk það vel, þar sem maginn var tjónaður af bjór. Lét Baldur fá forskotið. Endaði það ekki bara þannig að Baldur hafi klárað svona 70% af þessari Tequila flösku, liggjandi uppí rúmi að éta snjó. Steindrapst fyrir ballið ! haha. 500 km eða meira og enginn Palli fyrir Baldur, aww. Hins vegar fór ég blekaður með Ástey á ballið og dansaði mest partinn bara við hana.

Daginn sá ég að Baldur hafi vaknað. Eg opnaði annað augað og kíkti aðeins á hann. Shit svipurinn á honum var eins og hann hafi farið aftur í tímann! Kjellinn vissi EKKERT hvar hann væri, og hvaða par þetta var sem lá í herberginu okkar. Drapst úr hlátri en fór aftur að sofa. Svo vaknaði ég og Baldur var alveg handónýtur. Alveg viss um að hann hafi verið ennþá soldið fullur bara þegar hann var vakandi á tímabili. Það var ekki hægt að tala við hann. Við látum kjurt liggja og fáum okkur að borða, bíðum eftir að vont veður fer framhjá og leggjum af stað til Reykjavíkur. Skelltum okkur á KFC og í bíó. Daginn eftir bara ferð heim, þar sem ég svaf svona 80% af, frábært !

Gott 2x djamm hjá okkur Balla, og vona að hann Balli missi ekki taktinn og taki með mér næstu helgi Tequila flösku og svo aftur 15.feb. Ætlum okkur að rústa áskorun Hjalta og félaga.

Segjum þetta gott, bíður mín heimaverkefni í stæ 603 og skilaverkefni í þýsku 403.

Sic Transit Gloria Mundi!

13. janúar 2008 klukkan 18:40
Fólk alveg að deyja því það fær ekki að lesa fallegu orðin mín.  Byrjaður að fá hótunarbréf í gegnum lúguna sem og í e-maili.  Kjeppz, ég hef bara öðrum hnöppum að hneppa.  Sem sagt vera á msn og gera ekki neitt.  Veit að Binni var búinn að hóta mér öllu illu ef ég myndi ekki blogga þannig, þetta er til þín Binni.  Veit samt ekkert hvað ég ætti að blogga um þannig ég læt hugann flakka í gegnum lyklaborðið og töfrar munu gerast.

Svona það helsta sem hugurinn ber mig er auðvitað ferðin okkar mikla til Costa Del Sol.  Vá hvað það verður brjáluð ferð.  Herbergi okkar er skipað af eingöngu skúnkum, burt séð frá mér.  Það er að segja ; Óli - höfuðskúnkur, Dóri - bailskúnkur, Krissi - égerhætturaðsjáþigkristján skúnkur, Smári - Semi/skúnkur sem er að breytast í smá skúnk.  Veit ekki betur en ég endi bara einn í emokasti blind fullur í sundlauginni með gítarinn, semjandi lög um hversu hræðilegir skúnkar þeir eru.  En ég bind miklar vonir við það að þeir lagist í ferðinni og djammi af sér rassgatið.  Óli höfuðskúnkur er alla vega búinn að lofa mér öllu því besta, sem hann hefur í fari sér.  Það verður gaman að sjá hvernig það endar.

Svo erum við Smalli svona að spá fyrir um mestu byttuna í okkar herbergi.  Eg sagði Óli, en Smalli benti bara strax á mig! Óli sagði ég líka.  Ætli tequila kvöldið heima hja mér seinna um árið 2007, hafi ekki varpað djúpum skugga á mig í þessum málum.  En það eru nokkur plön fyrir þá sem deyja fyrst.  Væri gaman ef einhver myndi bara commenta og bæta við nokkrum góðum, en hér eru nokkur sem við Smalli komum með.

#1 - Klassíkin mikla.  En hvað er betra en að teypa dauða gaurinn (Óla!!) upp í loftið!! Það væri náttúrulega mesta snilld í heimi.  Svo þegar hann vaknar, hefur hann ekki hugmynd hvar hann er.

#2 - Að klæða hann (Óla!!) úr flest öllum fötunum.  Henda honum í lyftuna, með tóma vodka flösku í hönd og skilja hann eftir þar!

#3 - Alltaf gaman svo að henda (Óla!!) á eina vatnsdýnu og útá sundlaug bara, útkrotaðann!

#4 - Veit ekki hvort þetta sé hægt! En það yrði frábært að taka hann (Óla!!) með í taxa.  Verðum eiginlega að gera okkur grein fyrir því að hann þarf að deyja um dag í þessu, en það er ekkert ólíklegt :)  Með Taxanum myndum við svo fara í vatnsrennibrautagarð.  Borga okkur alla inn, ef það heppnast.  Láta hann (Óla!!) svo í geðveikt bratta rennibraut, slá hann í andlitið, vekja hann og henda honum svo niður!

Jááá þetta eru svona skemmtilegar pælingar hvað við munum gera.  Þetta verður alveg rosaleg ferð og ég trúi ekki öðru!!  Baldur ég held við þurfum að fara að virkja "Tequila bræður" aftur.  Eg get ekki drukkið þennan horbjóð lengur, þannig við verðum að koma okkur í gírinn!

Nenni alla vega ekki að hafa þetta lengur Binni kjell! og Klara jólasveinka svo ég set hugann í 2 gír og róa þetta niður.



Japanskur töffari með meiru ! Snillingur á ferð og fær það prímasæti að vera mynd í blogginu mínu

Yfirlit 2006 ? Nehh

31. desember 2007 klukkan 02:38
Búinn að koma mér fyrir framan tölvuskjáinn, í von um að geta bloggað einhvað. Skrýtið að þetta sé síðasta bloggið á árinu. Síðasta allt á árinu eiginlega. Nema ég geri einhvað svæsið í dag, sem ég efast stórlega um. Hver veit eftir nokkra öllara.

Samt 2007 var eiginlega ekkert spes, eiginlega bara hræðilegt. Gerði lítið sem ekki rassgat allt árið nema hanga fyrir framan tölvuna á msn. Svona ef ég lít yfir árið þá sé ég ekkert sem stóð uppúr, nema hlutir sem maður nennir varla að tala um núna. Samt húmor í því að hafa verið dömpað á leiðinni heim til Ísafjarðar eftir utlandsferð með fyrirverandi. Nóg um það! Átti ekki mikið af góðum djömmum eins og 2006. Besta djammið á þessu ári myndi ég segja að væri þegar félagarnir komu heim til mín. Ég og Tequila flaskan áttum góða stund saman. Dagurinn eftir það var svo án efa með þeim verstu dögum sem ég hef upplifað á árinu. (Hugsaði mig lengi um öll djömmin sem ég átti og ég fann ekkert sem stóð það mikið uppúr) En auðvitað átti maður djamm sem að maður man vel eftir. Svolitlir eftirmálar af því djammi, en það skaðar engann.

Eignaðist samt nokkuð marga kunningja og kunningjar urðu félagar. Varð sjálfráða sem breytti svo sem ekki miklu. Fékk reyndar að spila á gítar með bestu félögum mínum. Það var helvíti gaman og vonandi verður einhvað meira af því á næsta ári right ? Eða suckaði sólóið mitt svona í "Eg sá mömmu kyssa jólasvein" :(

Jæja ætla ekki að fara að skíta meira yfir þetta ár. Það var svo sem ágætt bara. Man ekkert núna, en svo minnist ég einhvers sem gerðist og þá verður algjör þversögn á mér. Hins vegar verður næsta ár örugglega frábært. 3.bekkjar ferðin með öllum bestu félögunum. Brjálað stuð á öllum! Get ekki beðið. Byrja í 4.bekk og fkn hársprey (hársbreidd, fann víst ekki orðið fyrr en Smári sagði mér það haha) frá því að klára menntaskólann !! Svo bara flytja úr þessari holu við fyrsta tækifæri og taka heimsferð með Balla. Ég er alltof gamall. Áður en ég veit af, er cosmic gengið allt komið með bílpróf, rúntandi um bæinn drepandi mann og annan. Nema Klara því hún fær náttúrulega aldrei bílpróf (Bara hefna mín!).

Peff nenni ekki að hafa þetta mikið lengra. Bragi hálfviti rakkar mann alltaf niður fyrir svo löng blogg, svo ég ætla ekki að vera súper gay með því að hafa þetta 2000 orða ritgerð.

Gleðilegt nýtt ár eftir nokkra tíma

Manneskja ársin fer umhugsunarlaust til Evu! Frábær karakter þar á ferð með allt í höndum sér ;)
(ekki fara að væla við mig á msn afhverju þú varst ekki, þú ert bara ekki jafn cool!!)



Svona á að djamma á ÁRAMÓTUNUM! FUCK JÁ?!

Enda svo blankir útaf jólagjöfunum og jólunum og öllum jólaljósunum. Allir byrja ađ vinna í dyrunum

24. desember 2007 klukkan 14:20
Jæja þá eru jólin byrjuð að skríða nær manni. Vill bara segja gleðileg jól sætu blogg lesarar (Samt ekkert allir sætir sko ...) og ekki detta of mikið í það á áramótunum. Eða júúú auðvitað.


Sérstakar jólakveðjur fá :

Smalli fyri að rústa lífinu 24/7

Dóri fyrir góða pes leiki á árinu. Gamans má geta að nefna einn leik sem stóð uppúr. Þegar ég vann Dóra með Wales og hann var Brasilía. 6-5 leikur!! Segi svona, Dóri vann mig :(

Óli fyrir frábærann skúnk á þessu ári. Algjörlega stóð uppúr með nokkur góð trix.

Krissi fyrir æðislega kvöldrétti fyrir okkur Smalla á árinu. Frábært pasta með osti og kjúklingabitar. Meistaralega vel gert

Baldur!! Hver gleymir tequila kvöldinu okkar Balla. Frábært kvöld og eitt most waisted kvöld ever (A)

Jói fyrir að leyfa mér að joina í stúdíóið að lyfta á helgum

Hjalti verður að fá eina góða sérstaka jólakveðju fyrir góða stærðfræði 503 nótt og hafa skitið á okkur í prófinu daginn eftir, en samt náð prófinu ! Ostafylltir kanntar!

Einar fyrir að hanga of mikið á langa manga og rúntinn í gær

Bjössi náttúrulega fyrir að sucka all hræðilega í dOTA og öllu öðru sem tengist tölvuleikjum.

Cosmic :

Klara fyrir alla fagging frasana á msn. Like tot búinn að læra fullt af orðaforða frá þér fraabb

Ólöf fyrir að minna mig á að bursta tennurnar um jólin :( Hefði aldrei munað eftir því. Takk

Fibblin :

Vikka fyrir að eyðileggja bílinn minn. Taka undir honum eina hlífina. Svo þegar ég tek þig næst á rúntinn þá eyðileggst einhvað í hægri hjólganginum að framan. Þúrt happa í þessum bíl

Ebba fyrir að lesa alltaf bloggin mín (að þinni sögn! veit ekki hverju ég á að trúa) og fyrir að stela Smára mínum!! Hélt ég og Smári værum ment to be :( Guess not ...

Hannz fyrir að hafa leyft mér að rústa henni alltaf í triva (A) CARE! :)


Æji shet var að fatta að ég á eftir að pakka öllum gjöfunum mínum inn og fara með þær útum allt. Set punktinn hérna þótt ég hefði alveg viljað skila fleiri kveðjum til fleiri fagga eins og Högna, SiggaF og einhverra homma. Geri það bara blekaður á áramótunum I guess.

I reach towards the sky

16. desember 2007 klukkan 20:23
Óstjórnandi líðurinn getur ekki hamið sig eftir næsta bloggi svo hér kemur heiðarleg tilraun til þess að blogga.

Helgin hjá mér var nú ekkert það fjörug.  Annað en hjá sumum.  Föstudagurinn var bara eins og leiðinlegur sunnudagur.   Rúntaði með Smalla eins og algjör hæna og bensínmælirinn byrjaður að pirra augun.  Þá var hringt í mig og var það ekki hinn eini og sanni æðislegi Helgi Dan.  Byðja mig um far í fótboltapartí í kíwó.  Þegar ég var komin hálf leiðina að kíwó hringdi Binni í mig og bauð mér í partíið.  Takk fyrir það Binni, kannski svona 7 tímum of seint (Y)  Kíkti inn í 10 mín og þá var allt rólegt, allir vinir og að spjalla.  Rúnar stakk reyndar eyrnalokk í gegnum eyrað á Gísla, sem ég er ennþá að reyna að átta mig á.  Síðan nennti ég ekki að vera þarna lengur útaf einhverjum ástæðum.  Nei jæja daginn eftir er ég að borða kvöldmat með Smára í hamraborg.  Kemur Hjalti ekki að borðinu okkar allur bólginn á hægri auganu með sár undir því.  Segir okkur hvað kvöldið hafi bara verið í rugli og allir hafi verið að lemja alla.  Sem betur fer var ég farinn.

Annars í gær fór ég með Smára útí vík.  Planið var afmæli hjá Rebekku í kjallarnum.  En Smalla langaði að spila aðeins með stelpunni sinni þannig ég geystist með þeim í trivia, og rústaði þeim.  Þar voru Bjarni Rúnar, Gunni Boy, Viktoria, Imba og svo kærustuparið fallega.  En einhvað segir mér að Brasilía sé í Evrópu, en fæ það ekki fært inní heilann á mér Viktoria ? Kannski þú rökræðir þetta við mig einhvern tíman, við betra tækifæri kannski?  Svo var skellt sér á kjallarann, óskað Rebekku til hamingju, chillað þar til sirka 12.  Svo var bara tekið Dúlla spjall á þetta langt fram eftir nóttu og pes.  Algjörlega bakaði Dóra með Ac Milan 2 skipti í röð.  Hann var ekki par sáttur með það og vildi þriðja leik.  Þá loksins náði hann að vinna mig, enda voru 8 menn eftir á vellinum mín megin þegar ég kastaði frá mér fjarstýringunni í 5-2 leik.  Hræðilegur leikur.

Sunnudagar ávalt hæstir í mínum gleðiflokki.  En núna var sveifla á honum.  Mikið rétt.  Mission fyrir jólaband 3.bekkjar.  Fengum gigg við að trylla líðinn í aðventumessu á Holti ! ROCK ON! Var encore og læti (Samt ekki :().  Enda skildi maður fólkið í messunni alveg eftir sig þegar maður tók shred picking godness sólóið mitt við "I saw mommy kissing Santa Clause".  Já ágætt gigg.  Eftir það fórum við í næsta hús og opnuðum kampavínið eftir góða tónleika.  Biðu ekki eftir okkur 3 stelpur sem endilega vildu vera grúppían okkar.  What við erum betri en Dream Theater á hljóðfæri, þurfum enga fkn grúppíu! Sendum þær heim með skottið á milli lappana og hlóum hressilega af þeim.  Rock and role lífið, fer stundum með mann.

Annars vill ég minna á jólakvöld 3.bekkjar á morgun klukkan 20:00.  Allir að mæta ef þeir vilja sjá guðlega sólóið mitt sem ég tók og ég lofa betri showi núna, heldur en á Holti.  Stelpur getið líka sleppt því að koma backstage eftir tónleikana, við viljum engar grúppíur ... kannski Balli taki 2-3 þannig talið bara við hann.



Svona var stemmingin á Holti í dag! Lofum engu síðri á morgun á jólakvöldi 3.bekkjar! Svo láttu sjá þig félagi ;)

Kjellllingar!

02. desember 2007 klukkan 18:32
Jæja þá er þessi alræmda helgi á enda.  Ekkert gerðist hjá mér á helginni ég var bara rólegur heima hjá mér í tetris ...

Föstudagurinn : var all svakalegur.  Maður byrjar á því að fara í skólan eins og gengur og gerist.  Maður fær 4 í námseinkun eins og gengur og gerist.  Maður fer heim eftir skóla og leggur sig smá eins og gengur og gerist.  Síðan byrjar fjörið maður.  Björn hringir í mann og byður mann um lán, helvítis kjellingin.  Auðvitað með þetta risastóra hjarta á við koktelsósumagnið í blóðinu í Dóra, fer maður útí bæ með Bjössa og Arnar og lánar honum stórar upphæðir.  Eftir það er bara rúntað, þangað til Arnari datt það skelfilega ráð í hug að byrja bara á mjólkinni klukkan 5! Arnar not cool sko *-)  Eg drulla mér í sturtu og geri mig fkn sexy, þarf ekki mikið til samt.  Hoppa uppí bíl til Arnars og Bjössa og við keyrum uppí Kíwó.  Gummi to the J var að halda afmælið sitt þar og auðvitað sýndi maður lit og mætti þangað.  Þar blasir Danni Fabio við okkur á barnum og ég og Arnar eins og graðir skólastrákar förum og checkum hvað hann hefur uppá að bjóða.  Er kallinn ekki með eina rosalega blöndu fyrir okkur a.k.a : sleiktur hamstur.  Það var nú policy að þeir sem væru í bleiku bindi mættu bara fá þannig drykk!  Eg og Arnar sitjum fyrir framan barin þangað til við föttum að við erum einir eftir í húsinu með áfengi uppá hvað svona 50 þús kr :)  Ennn við vorum rólegir, enda með koktelsósumagnshjartað hans Dóra.  Svo loks koma strákarnir eftir 20 mín og Arnar hlaupandi um húsið nakinn á meðan ég er dauður útí horni.  Eða vildi að svo hefði farið :(  Þá hefði ég kannski ekki farið á ballið.  Það er annar handleggur.  Svo var bara skellt sér á matinn uppí skíðabunkernum eða hvað sem þetta heitir.  Orðinn vel góður þar.  Þar var bara dælt í sig dýrindis máltíðum og svo bara beðið eftir fyrsta fari aftur uppí kíwo.  Ekki leið á löngu þangað til Smári þurfti að fara útaf einhverjum ástæðu, hverjar skildu þær vera?  Baldur og ég hlaupum beint á barinn og fáum okkur skot! Vá byttur ...  Eftir svona 30 mín byrjaði að streyma inní húsið og loksins djammið byrjað af alvöru.  Tíminn leið eins og Dóri að éta 3 hamborgara! (Sorry Dóri, bara í einhvern megin svona stuði. Tek annan fyrir næst, lofa (A)).  Þá var bara reddað sér far á ballið.  Svo kom maður á ballið og ég veit ekkert hvað gerðist þar ...... beint heim eftir ballið, spjallað við félaga á msn og uppí rúm með tárin í augunum :(

Laugardagurinn : vaknar með tárin í augunum :(  Fer að hjálpa Gumma J og þeim að þrífa kíwó, sem var eins og herbergið hans Dóra á góðum degi!!  Svo fór maður bara og tók því rólega heima hjá Smára með DVD mynd og lappan í númer 2.

Jæja nenni ekki að skrifa meira.  Vill minna á að það eru einhverjar svæsnar 38 myndir af kíwó djamminu í myndir.  Nennti heldur ekki að koma með einhvað pælinga blogg núna, maybe later.  En það má alveg halda í þessi 47 comment sem voru síðast ?


Emil out, sem gerir aldrei neitt á djamminu sem hann sér eftir daginn eftir ;)



FLOTTIR MAÐUR!

Atburđarteljari

Ég

  • Nafn: Emil Ragnarsson
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Námsmađur međ öllu
  • Hjúskaparstađa: Lausu

Lög vikunar!

Svört sól - Sóldögg !!